2.450 ára gamalt Iceslave mál

En það varð mikið kvein meðal lýðsins og meðal kvenna þeirra yfir bræðrum þeirra, Gyðingunum. Sumir sögðu: "Sonu vora og dætur verðum vér að veðsetja.

Vér verðum að fá korn, svo að vér megum eta og lífi halda." Og aðrir sögðu: "Akra vora, víngarða og hús verðum vér að veðsetja. Vér verðum að fá korn í hallærinu!"

Og enn aðrir sögðu: "Vér höfum tekið fé að láni upp á akra vora og víngarða í konungsskattinn. Og þótt hold vort sé eins og hold bræðra vorra, börn vor eins og börn þeirra, þá verðum vér nú að gjöra sonu vora og dætur að ánauðugum þrælum, og sumar af dætrum vorum eru þegar orðnar ánauðugar, og vér getum ekkert við því gjört, þar eð akrar vorir og víngarðar eru á annarra valdi."

 Biblían Nehemia bók, 5 kafli vers 1 að versi 6


mbl.is Brown álítur Icesave bindandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Mætti halda að mennirnir sem stjórna þessu öllu saman þegar er á botninn hvolft hefðu lært af reynslunni. Sérstaklega svona miðað við að flestir þeirra segjast vera trúaðir, hvort sem það er kristinntrú, islam eða gyðingstrú. Nei bíddu, þeim er alveg sama. Alveg rétt, þetta var planið þeirra allan tíman.

Það á ekkert eftir að breytast á meðan við notum sama kerfi og var notað þá. Eini munurinn er að við erum búin að flækja þetta svo ótrúlega að það er ekki hægt að búast við því að almenningur skilji hvað er raunverulega í gangi.

. (IP-tala skráð) 26.11.2009 kl. 19:33

2 Smámynd: Þórarinn  Þ Gíslason

Sæl, Guðrún.

Þetta er athyggliverð lesning .

Kveðja.

Þórarinn Þ Gíslason, 27.11.2009 kl. 01:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Senda í CCI | Hafðu samband