ESB draumasýnin.

Þetta sama ástand gæti hæglega skapast á Íslandi ef við göngum í ESB. Þá verður kippt stoðunum undan íslenskum landbúnaði sem hefði í för með sér aukið atvinnuleysi meðal bænda, starfsmanna í kjöt og mjólkurbúum sem og ostagerðum og öllu því sem hefur að gera með þjónustu við þessar greinar. Jafnvel má búast þá við hruni í íslenskri kex og sælgætisframleiðslu ef að íslenska mjólkurduftið verður ekki framleitt, en mjólkurduftið úr íslensku kúnni er það sem gerir íslenskt súkkulaði svo sérstakt.

Afleiðing af þessu öllu yrðu minnkandi skatttekjur ríkis og bæjarfélaga sem hefði í för með sér minnkandi fjárframlög til skóla og annarrar velferðarþjónustu, sem kæmi niður á upphitun á kennslustofum og klósettpappírskortiBlush

 

 "Fjölmargir íbúar í spænsku borginni Valencia tóku þátt í mótmælum í kvöld eftir að lögregla beitti námsmenn harðræði í gær er þeir mótmæltu niðurskurði til skóla. Meðal annars er hætt að kynda upp skólastofur og salernispappír er af skornum skammti"


mbl.is Kaldir skólar og enginn salernispappír
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Já sumir vita ekki hvað þeir eru að kalla yfir sig. Grasið er ekkert grænna út í Evrópu. Ömurlegar fréttir frá Grikklandi í hverjum einasta fréttatíma.

http://www.facebook.com/180moviecom?sk=wall#!/photo.php?fbid=314416048610439&set=o.160411127381159&type=1&theater

Rósa Aðalsteinsdóttir, 21.2.2012 kl. 23:28

2 Smámynd: Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir

Já þetta lítur ekki glæsilega út fyrir framtíðarfólkið.

Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir, 21.2.2012 kl. 23:50

3 identicon

Og í bók sem ég er að lesa núna ( Sov mitt lille Norge , eftir Per-Aslak Ertresvåg) segir að frá 1995 ( árið sem  Austrríki gekk í ESB) til 2000 hafi bændum í Austurríki fækkað um 70.000 .  Og að þýskaland getur ekki  séð sér fyrir þeirri mjólk sem þeir þurfa , þeir flytja inn mjólk frá Danmörku . Orðið fæðuöryggi er ekki bara orð á blaði , við getum ekki séð af einum einasta bónda

Guðrún Skúladóttir (IP-tala skráð) 22.2.2012 kl. 00:34

4 identicon

Það er nú ekki mikil framtíðarsýn hjá bændum ef þeir telja að allt ESB sé samkeppnisaðili íslensks landbúnaðar.

Bændur eiga að sérhæfa sig meira og flytja út landbúnaðarvörur.

Einbeita sér að ákveðnum markaðssvæðum.

T.d. Gouda ævintýri MS í Hollandi. Ég prófaði að gúggla íslanskan gouda í Hollandi og ekkert kom upp.

Það er röng markaðssetning á íslenskum afurðum.

Hvernig væri t.d. "beint frá býli til London"? Bara svona pælingar.

Allavega er samkeppni alls staðar að verða þannig að aðeins "sérhæfing" býr til meiri peninga. Að gera eins og hinir og ætla að fá það sama eða meira er ekki í kortunum í dag og verður aldrei.

Það eru til margar bækur um þessi mál og það er best fyrir framleiðendur að kynna sér hvernig kaupin gerast á eyrinni í dag, en ekki hvernig þau voru í denn.

Eiginlega hafa landbúnaðarmál á Íslandi ekkert með ESB að gera. Ef bændur og framleiðendur aðlaga sig ekki að nútímanum og gera klárt fyrir framtíðina, þá er landbúnaður á Íslandi dauðadæmdur. Nema þeir sem sérhæfa sig.

Stefán (IP-tala skráð) 22.2.2012 kl. 06:39

5 Smámynd: Guðrún Sæmundsdóttir

Stefán er ekki upplagt fyrir gríska bændur að hella sér útí útflutning og redda málum? hehe....

En hvað varðar markaðssetningu á mjólkurvörum erlendis, eins og ESB sinnar boða, þá er nú lítið að hafa á þeim vettvangi í bullandi heimskreppu.

Guðrún Sæmundsdóttir, 22.2.2012 kl. 09:34

6 identicon

Jú, þeir geta farið í útflutning:)

Það gerist ekkert á einu ári í markaðsmálum. Út um alla evrópu er verið að framleiða og selja fetaost. Þú getur séð það hér á Íslandi.

Hversu mikið af honum er grískur?

Það er alveg eins og á Íslandi eins og Grikklandi. Þegar allt "gengur vel" þá skipta smáatriðin engu máli.

Nú er bara að byrja.

Hefur þú einhvern tíma heyrt frumkvöðla tala um að nú sé ekki rétti tíminn?

Var á frábærum fyrirlestri á föstudag í síðustu viku. Hann sagði að frumkvöðlar stæðu sig best í kreppu.

Þeir hafa hugmyndir og lausnir sem aðrir tala niður, altaf:)

Stefán (IP-tala skráð) 22.2.2012 kl. 09:53

7 identicon

Það virðist einnig vera að þeir ríku finna aldrei fyrir kreppu.

Þess vegna er sérhæfing og sala á vörum til þeirra alltaf besta lausnin.

Það gengur ekki að fara að selja mjóld ódýrar en MS. En það er hægt að markaðssetja vörur sem eru sérstakar og fyrir valinn markhóp en ekki fyrir allan heiminn.

Þú getur kanski séð það á íslenska fiskinum. Hvernig væri það ef SH væri enn að láta íslenska fiskframleiðendur framleiða frystar fiskblokkir fyrir "fish fingers" eða McFish?

Stefán (IP-tala skráð) 22.2.2012 kl. 09:58

8 Smámynd: Guðrún Sæmundsdóttir

Stefán, nýlega kom það fram í fréttum að sala á íslenskum saltfiski á helstu mörkuðum sem eru Portúgal og Spánn hefði dregist saman um 20% vegna versnandi efnahagsástands þar.

Íslenskar mjólkurafurðir eru fluttar út, og þær eru dýrar á erlendum mörkuðum. Það er allt í lagi að selja á þennan gourmet markað en þessi gourmet markaður er að dragast saman og þessvegna er útilokað að taka slíka áhættu fyrir íslenskan landbúnað sem ESB aðild felur í sér.

Guðrún Sæmundsdóttir, 22.2.2012 kl. 10:16

9 identicon

Saltfiskur fer ekki á gourmet markaði erlendis.

Geturðu bent mér á tölur þess efnis að "gourmet" markaðurinn er að dagast saman?

Tölur þess efnis að vörur sem byggja á sjálfbærri þróun seljist alltaf betur og betur. Það er t.d. markaður sem hægt er að skoða.

Ferrari er smá fyrirtæki miðað við GM eða Toyota. Þeir byggja á sérhæfingu.

Prada: http://www.bloomberg.com/news/2011-09-19/prada-first-half-profit-jumps-74-on-stores-asia.html

Það eru tækifæri út um allt.

Stefán (IP-tala skráð) 22.2.2012 kl. 10:29

10 identicon

Sæl, ég vil nú ekki vera að bögga þig. Ég hafa bara svo mikla trú á íslenskum landbúnaði. Mér finnst að þeir þurfi aðeins að nýta tækifærin betur.

Hér er frétt um sölu á svissneskum ost. Sala á þeim osti sem hægt er að "herma eftir" minnkar mest.

Sala á osti sem ekki er framleiddur utan Sviss stendur í stað eða eykst alveg helling þrátt fyrir styrk svissneska frankans.

http://www.swissinfo.ch/eng/business/Swiss_cheese_priced_out_of_market.html?cid=30831662

Nú þarf bara að kveikja undir hjá þeim í lanbúnaðinum:))

Stefán (IP-tala skráð) 22.2.2012 kl. 10:37

11 Smámynd: Guðrún Sæmundsdóttir

Stefán, saltfiskur er núna munaðarvara. Það er gífurlegur ábyrgðarhluti og skelfileg óráðssía sem ESB aðildarsinnar gerast sekir um þegar þeir núna "gambla" með framtíð íslensks velferðarkerfið sem á alla sína afkomu undir vinnandi stéttum.

Guðrún Skúladóttir bendir réttilega á í sínu innleggi að við þurfum að horfa til fæðuöryggis. hér kemur kafli af frétt Rúv frá því fyrir nokkrum dögum, Stefán vissir þú að kílóið af safaríku innfluttu nautasteikinni þinni "kostar" fimmtán þúsund og fimmhundruð lítra af vatni?

"Skortur á neysluvatni blasir við í Bretlandi. Úrkoma hefur verið minni í vetur en nokkru sinni frá árinu 1972. Ár hafa víða þornað upp vegna þurrka og skammta þarf vatn til helmings heimila í landinu frá og með apríl ef fram fer sem horfir.

Caroline Spelman umhverfisráðherra Bretlands heldur neyðarfund með náttúruverndarfélögum og vatnssölufyrirtækjum í næstu viku. Búist er að fljótlega verði gripið til aðgerða eins og banna bændum að dæla vatni úr ám, bannað verði að vökva gras, þvo bíla og nota vatn í sundlaugar.

Lítið sem ekkert hefur rignt í vetur á Englandi, auk þess sem árið í fyrra var annað þurrasta ár í heila öld um miðbik Englands. Vatnssölufyritækið Thames Water sem selur vatn til 14 milljóna heimila hefur beðið fólk um að spara vatn. Grunnvatnsstaðan sé nú lægri en hún var i þurrkunum 1976. Ekki sé spurning um hvort heldur hvenær þurrkarnir verði og hversu langvinnir þeir verða" frétt af vef RÚV. http://ruv.is/frett/vatnsskortur-i-bretlandi#

Guðrún Sæmundsdóttir, 22.2.2012 kl. 11:10

12 identicon

Guðrún, var ég að tala um innflutning. Veistu, ég veit þetta alls saman.

Getur þú hjálpað mér aðeins. Er sjálfbærni eða sjálfbær þróun kennd á Íslandi í landbúnaðarháskólanum?

Geturðu bent mér á í hvaða greinum sjálfbær þróun er kennd?

Ég er að læra þetta og er í viðskiptaáfanga erlendis. Þetta er framtíðin.

Stefán (IP-tala skráð) 22.2.2012 kl. 12:30

13 Smámynd: Guðrún Sæmundsdóttir

Og hvað er það sem þú veist svona mikið um Stefán? 

Ég þekki ekki námsvalmöguleika í landbúnaðarháskólanum, ég bendi þér á að leita þér eftir upplýsingum á heimsíðu hans.

 Ef þú ert með góða kennara í viðskiptum ættu þeir að hafa gert þér grein fyrir afleiðingum kreppu á neysluvenjur fólks. Og ef þú ert með góða kennara í markaðsfræði þá ættu þeir að hafa bent þér á að sóknarfærin liggja í Asíu en ekki í Evrópu. Við íslendingar ættum að passa okkur á því að múrast ekki inní ESB svo að við sjálf getum frjáls og óháð sótt á nýja markaði í Asíu með okkar framleiðsluvörur.

Guðrún Sæmundsdóttir, 22.2.2012 kl. 12:47

14 Smámynd: Guðrún Sæmundsdóttir

ESB er með takmörk á innflutningi á ostum og öðrum landbúnaðarvörum frá löndum utan ESB.

Gamalt máltæki segir "Betri er einn fugl í hendi en tveir í skógi" það á við í þessu máli.

Guðrún Sæmundsdóttir, 22.2.2012 kl. 12:58

15 Smámynd: Guðrún Sæmundsdóttir

Og hvaðan koma peningarnir til að greiða laun kennarana þinna Stefán? Hvaðan koma peningarnir til að viðhalda skólahúsnæðinu sem þú ert í? Hvaðan koma peningarnir í lánasjóðinn?

Svar: Peningarnir koma frá vinnandi stéttum, þeir koma frá sköttum þeirra sem vinna við landbúnað og sjávarútveg, vill kennarinn þinn raska þeirri tekjulind?

Guðrún Sæmundsdóttir, 22.2.2012 kl. 13:29

16 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Stefán hefur mikið til síns máls. Við þurfum samt að líta til fleiri staða en Evrópu í sambandi við útflutning. Sem betur fer hafa margir bændur gert frábæra hluti í markaðssetningu.

Ömurlegt að heyra um fækkun bænda í Austurríki. Veit að bændur í Finnlandi eru ekki ánægðir með skipanir frá Brussel. Þekki þetta persónulega - mákona mín er dóttir bænda sem hafa nú minnkað búskap vegna aldurs. Þau ákváðu að fella tré en þau eru skóarbændur. Þau rifu upp ræturnar og löguðu til fyrir kornrækt. það kom skipun frá Brussel til bænda að leggja áherslu á skórækt - það væri ódýrara að framleiða korn sunnar í Evrópu. Fáránlegt - ef eitthvað klikkar þarna suður frá þá er ekkert korn. Slæmar fréttir frá Bretlandi en svona getur alltaf komið fyrir að í einhverju landi eru veðurfarsbreytingar og þá gott að löndin í kring hafi nóg framboð. Við eigum ekki að setja öll eggin í sömu körfuna.

Kær kveðja/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 22.2.2012 kl. 13:32

17 identicon

Guðrún, hrikalega veistu mikið um mig:)

Við eigum að leita að tækifærum og einbeita okkur að styrkleikum.

Auðvitað er hægt að einbeita sér að veikleikum og hættum.

Við komumst aðeins áfram með því að einbeita okkur að því sem við erum best í og nýta tækifæri.

Ég tel að ESB sé ekki sú ógn sem margir telja að það sé. Ef við erum með sterkan grunn, þá getum við allt.

Ég held að þú vitir ekki hvar ég er að læra. Það vill svo til að ég verð að greiða fyrir skólann sjálfur og hann fær ekki opinbera styrki fyrir það nám sem ég er í. Einkaskóli. :)

Ég er búinn að vinna það mikið að ég hef efni á að greiða fyrir það án þess að fá lán.

Ég sendi þér link varðandi útflutning á ostum frá Sviss. Þeir eru ekki í ESB eða EES, en þeir redda sér samt enda mjög klárir.

Ég ætlaði ekki að vera eitthvað leiðinlegur. Ég ætlaði aðeins að benda á að möguleikar og tækifæri íslensks landbúnaðar stendur ekki eða fellur með ESB heldur hvort landbúnaðurinn nýti sér þau tækifæri sem eru eða eru að verða til allt í kringum okkur.

Stefán (IP-tala skráð) 22.2.2012 kl. 13:40

18 Smámynd: Guðrún Sæmundsdóttir

Takk Rósa fyrir þitt inlegg, fáránleg staða sem bændur í Finnlandi eru í.

Stefán þú ert nú ekki neitt svakalega leiðinlegur, en þegar þu kemur inná svona spjallþræði mátt þú búast við svörum. Það er vissulega fagnaðarefni að þú skulir geta greitt fyrir þitt nám sjálfur.

Styrkur Sviss er einmitt sá að þeir eru ekki í ESB, Sviss hefur auk þess sterka markaðsstöðu í ostum og þar er nú enginn hægðaleikur að komast inn.

Eigum við að taka áhættuna sem fylgir því að ganga inní ESB til að eiga smá möguleika á meiri ostaútflutningi? Nei og aftur Nei!!!!

Guðrún Sæmundsdóttir, 22.2.2012 kl. 13:45

19 Smámynd: Guðrún Sæmundsdóttir

Stefán, skoðaðu möguleikana sem við eigum í Asíu, þar eru virkilega mörg tækifæri fyrir íslenskar afurðir, og við þurfum engu að fórna til að sækja á þá markaði, við þurfum ekki að taka neina áhættu. Það hlýtur nú að vega þungt í hagfræði/markaðs og viðskiptafræði svo ekki sé nú minnst á heilbrigða skynsemi :)

Guðrún Sæmundsdóttir, 22.2.2012 kl. 13:55

20 identicon

Eru einhverjir að reyna útflutning til asíu? Það væri auðvitað frábær markaður þó svo að hann myndi ekki falla inní hugmyndina um sjálfbærni vegna flutningskostnaðar. En hvað með það:)

Stefán (IP-tala skráð) 22.2.2012 kl. 14:45

21 Smámynd: Guðrún Sæmundsdóttir

það er allt stopp útaf ESB aðildarferlinu.

Guðrún Sæmundsdóttir, 22.2.2012 kl. 15:23

22 Smámynd: Ólafur Björn Ólafsson

Það eru nokkur fyrirtæki í útrás með sínar afurðir, til dæmis LÝSI ehf. Lýsið fæst í Danmörku, Póllandi, og víðar. Svo má ekki gleyma áðurnefndum saltfiski sem er orðin munaðarvara sumstaðar. Skyr er flutt út ef það hefur farið framhjá einhverjum og svo má lengi telja. Við förum líklega að flytja út töluvert meir af vatni en nú er gert. Svo má ekki gleyma að við flytjum út töluvert af þekkingu ár hvert.

Svo skilur maður vel hugsanir fólks um yfirvofandi httu á alsherjar samdrætti í íslenskri matvælaframleiðslu ef landinu verður þröngvað í ESB. Ég hef álíka hugsanir um hvernig allt komi til með að vera en vona samt að við verðum fyrir utan ESB klíkuna. Það sem mig hryllir við er hvað er að gerast á Spáni, Grikklandi, Ítalíu, Írlandi, Portúgal, og víðar þar sem allt virðist vera á niðurleið. Ef þessi lönd eru svona illa stödd þrátt fyrir þennan tíma innan ESB, hvað verður þá um litla Ísland ef við lendum í klóm alræðisvaldsins í Brussel???

En svo að öðru... 

Það er gaman að sjá innlegg frá mönnum eins og Stefáni, vantar bara alvöru rökstuðning frá honum.

Kanski ég geti bet honum á eitt gott atriði varðandi menntun.

Í skólanum lærir þú allt um tölur og framleiðslu, nýtingu og fleirra sem nýtist þegar námi er lokið.

Sumt af því sem lært er má henda eftir skóla, hitt kemur til með að nýtast í starfi. Samt er alltaf eitt sem enginn lærir í skólanum...

Hvernig hinn blákaldi raunveruleiki virkar Við köllum það hinn raunverulega skóla sem gott er að læra á í nokkur ár áður en farið er að stjórna, ef maður kemst svo langt...

Kaldi

Ólafur Björn Ólafsson, 22.2.2012 kl. 20:13

23 Smámynd: Guðrún Sæmundsdóttir

 Takk fyrir gott innlegg í umræðuna Ólafur.

Þetta yrðu líklega örlög íslensk landbúnaðar í ESB 

" Króatískir mjólkurbændur flykktust út á götur höfuðborgarinnar Zagreb í dag og mótmæltu verðlækkun dótturfyrirtækis franska framleiðandans Lactalis, niður fyrir meðalverð Evrópusambandsins. Þeir telja sig ekki geta keppt við verðlækkunina. 

Tugum dráttarvéla var stillt upp á Slavonska breiðgötunni, sem liggur þvert í gegnum borgina, svo margra kílómetra umferðateppa myndaðist.

Mótmælendurnir saka mjólkurframleiðandann Dukat, sem er sá stærsti í Króatíu en er í eigu franska mjólkurrisans Lactalis, um að hafa einhliða bundið endi á samkomulag um að samræma verðlag mjólkurvara við meðalverð í Evrópusambandinu. Smærri framleiðendur segja að Dukat bjóði nú mjólkurlítrann á 0,30 evrur til endursölu, í stað 0,36 evrur á lítrann eins og samið hafi verið um.

Króatíska ríkið hefur allt frá árinu 2009 niðurgreitt mjólkurframleiðslu um 200 milljónir evra á ári, en sú niðurgreiðsla kann að lækka í boðuðum niðurskurði vegna kreppunnar."

Guðrún Sæmundsdóttir, 22.2.2012 kl. 22:35

24 identicon

Ansi svipar skrif þessa   Stefáns  lík og skrif  Stefáns Júlíussonar (bróður Katrínar ráðherra) Stefán er erlendis að læra að mig minnir.   Skyldi þetta vera sami maðurinn.?

Númi (IP-tala skráð) 23.2.2012 kl. 00:07

25 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Voruð þið að hlusta á sjónvarpsfréttir. Kínverjar ætla að kaupa af okkur grásleppu. Í gegnum tíðina hafa sjómenn bara hirt hrognin en í vor þurfa þeir að koma með grásleppuna að landi.

Flott innlegg hjá Ólafi: " Það sem mig hryllir við er hvað er að gerast á Spáni, Grikklandi, Ítalíu, Írlandi, Portúgal, og víðar þar sem allt virðist vera á niðurleið. Ef þessi lönd eru svona illa stödd þrátt fyrir þennan tíma innan ESB, hvað verður þá um litla Ísland ef við lendum í klóm alræðisvaldsins í Brussel???" Klingir engum bjöllum hjá ESB sinnum?

Góða nótt/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 23.2.2012 kl. 00:23

26 identicon

Góðan dag,

Ólafur Björn, ég þakka þér góð ráð sem. Ég hef tekið þátt í skóla lífsins þannig að ég hef lært eitthvað af því hvernig nám og starf passa oft illa saman, stundum aldrei.

Rósa, já þetta er flott hjá þeim. Að selja grásleppuna. Eftir að kvótar við Íslandsmið hefur það sem áður hefur verið kallað "rusl" verið hirt og fengist mjög góður peningur fyrir. Að hugsa sér allt tapið sem útgerðirnar hafa haft að hafa ekki fundið markaði fyrir þessar tegundr fyrr. Það þurfti að koma neikvæð utanaðkomandi áhrif á fyrirtækin svo þau neyddust til þess að selja einnig "rusl". Rusl er litli-karfi, stinglax o.s.frv.

Númi, þú átt að vinnta hjá CSI Las-Vegas. Þú ert frábær náungi þegar þú skrifar eins og maður:))

Ég benti á í nokkrum tenglum að í raun geta fyrirtæki unnið við hvaða aðstæður sem er ef þau eru í lagi. Þrátt fyrir sterkt gengi svissneska frankans eykst sala um 26% á sumum ostategundum. Það er vegna þess að þau hafa ekki nafn eins og "Swiss Cheese".

Með saltfiskinn. Jú, einhver hluti hans fer á "gourmet" markað, en eins og með Emmentalerinn, þá er auðvelt fyrir kaupendur að kaupa eitthvað annað í staðinn. "Substitute" kallast það víst á ensku. Það kostar ekkert aukalega að kaupa "hina" vöruna heldur geta menn sparað sér pening. Það er ekki "sérstaða", allavega ekki góð.

Góð sérstaða sést kanski í Kolaportinu, við kaupum hákarlinn hjá sama kallinum:) Hann hefur unnið að sinni sérstöðu, hann þarf ekki eindilega að gera sér grein fyrir því, en við sem kaupum hjá honum vitum að hans hákarl er bestur.

Stefán (IP-tala skráð) 23.2.2012 kl. 07:12

27 Smámynd: Guðrún Sæmundsdóttir

Háskólar hérlendis hafa valdið mér miklum vonbrigðum.

Þeir áttu stóran hlut í hruninu með því að tefla fram hverjum "fræðingnum" á fætur öðrum til að dásama útrásins, sumir þeirra eru ennþá þarna að kenna hagfræði!

Nú varðandi ESB umsóknina hafa háskólamenn haft sig mikið frammi við að  níða íslenskan sjávarútveg og landbúnað, og prédika eina allsherjar dýðrar lausn bara ef íslendingar ganga í ESB.

Hvað varðar nýtingu á þeim sjávarafurðum sem hingað til hafa ekki verið nýttar, þá er lágmark að eftirspurn og markaður sé fyrir afurðina. Það eru ekki svo mörg ár síðan að Kínverskir markaði fyrir þessar vörur opnuðust, og það er spennandi að sækja á þá markaði, eini skugginn á þeirri sókn er sá að ef við göngum í ESB erum við ekki lengur sjálfráð í viðskiptum við Kínverja, sem þýðir að allt markaðsstarf sem væri verið að vinna þar gæti farið forgörðum. Þessvegna eigum við að standa sjálfstæð og vinna markaði í Asíu á okkar forsendum, það er aðeins hægt með því að standa utan ESB.

Guðrún Sæmundsdóttir, 23.2.2012 kl. 11:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Senda í CCI | Hafðu samband