Ögmundur veit hvað hann er að segja.

Það eru ekki margir þingmennirnir sem þora að standa fyrir sinni sannfæringu með sama krafti og Ögmundur.

En ég er að velta fyrir mér þessari jafnræðisreglu sem að Jóhanna og Steingrímur eru svo stressuð yfir að við séum sek um að hafa brotið.  Okei ef við viðurkennum það hver er þá refsingin við því broti?  Og er ekki skiljanlegt að við höfum farið útí þann gjörning miðað við það sem á undan hafði gengið?  Við skulum átta okkur á því að við höfðum þá nýlega verið beitt viðbjóðslegri kúgun af hendi Breta sem að rústuðu gjörsamlega öllum alþjóðlegum viðskiptum íslendinga á einni nóttu með beitingu hryðjuverkalaganna.  

Icesave ásamt kúgun Breta í okkar garð á heima fyrir alþjóðlegum dómstólum.

Margir málsmetandi aðilar í alþjóðasamfélaginu hafa tekið upp hanskann fyrir íslendinga í Icesavedeilunni.


mbl.is Gegn hagsmunum Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Ríkharðsson

Sæl Guðrún, í þínum sporum myndi ég ekki eyða tíma í að  reyna að skilja Steingrím og Jóhönnu. Það er ekki hægt með þekktum viðmiðum. Það er til gamalt íslenskt orð; "heimska" sem lýsir þeim nokkuð vel. Ég áfellist þau svo sem ekki, fólk veit fyrir hvað þau standa. En það lýsir mikill heimsku að kjósa svona fólk til áhrifa.

Jón Ríkharðsson, 3.2.2010 kl. 12:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband