Færsluflokkur: Heilbrigðismál
3.2.2010 | 17:11
Fíklar í áhættuhóp
Það er ólýsanlegt að þurfa að umgangast siðblindingja, og þessi geðsjúkdómur er virkilega alvarlegur og hreinn hryllingur fyrir aðstandendur.
Þó svo að siðblindan geti verið meðfædd að þá gætir hennar einnig hjá fíklum og því hljóta forvarnir gegn siðblindu að fara saman með vímuefnaforvörnum. Reyndar þarf að taka þennan þátt miklu meira inní áfengis/fíkniefnameðferðir, heldur en að nú er gert. Það er ekki nóg að þurrka bara upp fíkla, því hjá mörgum þeirra þarf einnig að vinna með siðblindueinkennin. Siðblindingjar (phycopath) virða engin mörk í persónulegum samskiptum við annað fólk frekar en í víðskiptalífinu.
Eitt af því sem við almenningur getum gert til þess að hindra það að siðblindir einstaklingar fái aftur að vaða hér uppi, er að kanna afstöðu frambjóðenda í bæjar og sveitastjórnakosningum á vímuvörnum. Hikum ekki við að kanna afstöðu þeirra til málefna eins og áfengisölu í matvörubúðum sem og lögleiðingu kannabisefna.
Byrgjum brunninn.
|
Siðblinda finnst allsstaðar |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Heilbrigðismál | Breytt 14.2.2010 kl. 22:02 | Slóð | Facebook
30.1.2010 | 21:56
Sýklalyf fyrir Haitiskipið
Núna vantar lyf og hjúkrunarvörur í Haitiskipið, en mjög vel hefur gengið að safna tjöldum, teppum, matvælum og fatnaði fyrir þetta hjálparstarf.
Það væri frábært að apótek, lyfjaheildsalar, lyfjaframleiðendur og læknastofur gæfu lyf og hjúkrunarvörur fyrir þetta frábæra starf.
heimasíða Haitiskipsins er www.haitiskipid.is og facebooksíðan heitir einfaldlega haitiskipið
|
Sjúkdómar breiðast út á Haítí |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
19.1.2010 | 23:44
Haitiskipið
Það er mikil neyð á Haítí. Hundruð þúsunda manna eru heimilislausir, hungraðir og særðir eftir jarðskjálftann og hörmungin er rétt að byrja. Á næstu vikum og mánuðum munu þúsundir deyja af völdum áverka, sýkinga, hungurs og þorsta. Enginn getur hjálpað öllum en allir geta hjálpað einhverjum.
Markmið okkar, sem getum ekki lengur horft aðgerðarlaus á skelfinguna, er að fylla skip af vatni, matvælum og hjúkrunarvörum ásamt læknum og hjúkrunarfræðingum og sigla af stað. Þetta er erfitt verkefni og enginn er almáttugur en saman getum við gert kraftaverk.
Þessi sýn er orðin að veruleika, allir sem vilja leggja henni lið geta skráð sig á haitiskipid@gmail.com og á þessa facebooksíðu Haitiskipið
Tekið verður við hjúkrunarvörum og matvælum sem ekki þurfa kælingu t.d. hrísgrjón, pasta, súpur og dósamat í KFUM&K húsinu Holtavegi 28 frá og með morgundeginum klukkan 12-20
|
Borgin styrkir hjálparstarf á Haítí |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
10.11.2009 | 20:21
Hvað er siðblinda?
Siðblinda er algengur fylgikvilli kannabisneyslu sem og annara vímugjafa og eftirfarandi er tekið af vefnum Doktor.is
Hvað er siðblinda? Guðríður Adda Ragnarsdóttir, atferlisfræðingur Skrifað föstudagur, 1. jan - 1999 #
Spurning:Kæra Guðríður.
Mig langar til að vita hvað „siðblinda" er og hvernig hún lýsir sér? Og einnig hvort að hægt er að lækna einstakling sem haldinn er siðblindu? Viðkomandi einstaklingur hefur sýnt að hann veit ekki mun á réttu og röngu með því brjóta af sér með þjófnaði, skjalafalsi o.þ.h. og ekki séð að hann er að gera rangt. Hann hefur marg oft sagt ósatt og virðist ekki gera sér grein fyrir hvað er satt og ekki.
Hann gefur út að hann sé strangheiðarlegur og og virtur einstaklingur í þjóðfélaginu þangað til annað kemur í ljós með ofangreindum athöfnum og sýnir enga iðrun á sínum gjörðum. Hann tekur það sem hann getur hvernig svo sem að það kemur niður á öðrum svo lengi sem að hann hefur ávinning af því og sér ekki að hann er að gera neitt rangt. Hingað til hefur hann komist undan lagalegum refsingum með undanbrögðum og lygum sem eru svo sannfærandi að flestir gleypa strax. Hann er einnig ótrúlega seigur við að fá meðaumkun frá fólki þegar upp kemst um þjófnað eða önnur óheilindi. Það virðist ekki einu sinni snerta hann að hans eigin börn verða fyrir barðinu á þessu hátterni og er hann búin að gera þau að sínum verndurum
Hann lýgur til um uppruna sinn og gefur annaðhvort út að hann sé kominn af auðugu fólki eða að hann hafi verið barinn í æsku og búið við fátækt. Það fer bara eftir því hvað hentar hverju sinni. Ég gæti lengi vel talið upp atriði varðandi þennan mann, því miður, og það eina sem mér hefur dottið í hug er siðblinda. Hann hefur meira að segja blekkt sálfræðinga og félagsráðgjafa með ótrúlegum árangri honum í vil en slóð fórnarlamba þessa manns er orðin ansi löng.
# Svar: Góðan daginn og þakka þér fyrirspurnina. Spurningin er a.m.k. tvíþætt, og snýst annars vegar um það hvort sú lýsing sem þú gefur á hegðun viðkomandi kallist siðblinda, og hins vegar hvort hægt sé að lækna slíkt ástand.
Þú munt sjá af svari mínu að ég er ekki viss um að siðblinda verði læknuð svona eins og hver annar sjúkdómur. Það fer að öllum líkindum eftir stað og stund, svona almennu gildismati í þjóðfélaginu á hverjum tíma hvað við teljum að felist í því að vera siðblindur. Svona í fljótu bragði, þá er máltilfinning mín sú að einstaklingur sem hagar sér eins og þú lýsir, síendurtekur brot, talar sig auðveldlega inn á fólk, brýtur á sínum nánustu og iðrast ekki, gæti kallast siðblindur. Orðið er eins konar samheiti um síendurteknar athafnir sem hafa það sammerkt að vera lögbrot og vera særandi og meiðandi fyrir aðra. Í daglegu tali er eðlilegt og þægilegt að nota almennt orðalag af þessu tagi til að lýsa tilteknu mynstri hegðunar og kalla hana t.d. siðblindu, - fólk veit svona nokkurn veginn við hvað er átt.
Vandinn er hins vegar sá, að okkur hættir til að nota slík regnhlífarheiti þegar við reynum að skýra orsakir hegðunar sem okkur finnst erfitt að skilja. En við getum einnig velt því fyrir okkur hvort við skiljum skýringuna nokkuð betur? Ef við útskýrum flókna hluti með öðrum flóknum hlutum sem sjálfir þarfnast skýringar, segir það okkur sjaldnast í rauninni nokkuð nýtt. Eftir slíka röksemdafærslu erum við eiginlega komin í hring – hann hagar sér svona af því að hann er siðblindur, hann er siðblindur af því að hann hagar sér svona. Við erum sem sagt farin að skýra skýringuna með hegðuninni sem skýringin átti upphaflega að skýra! Verra er þó, að þegar maður er lentur aftur á slíkum byrjunarreit, þá hættir manni til að sætta sig við svarið, „skýringuna” og leggja hendur í skaut. Hvað er þá hægt að gera í tilvikum af þessu tagi? Að tala um fyrir manninum og reyna að taka beint á hegðun hans gerir lítið annað en að slíta ykkur og íþyngja. Það þurfa væntanlega að verða einhverjar breytingar á því samhengi sem hegðun hans gerist í, þ.e. þeim aðstæðum sem hún skapast við og þeim umsvifalausu afleiðingum fyrir hann sem hegðun hans hefur.
Kannski liggur lausnin einmitt þarna í þínu eigin svari, þar sem þú segir meðal annars: ...svo lengi sem að hann hefur ávinning af því..., og ...hingað til hefur hann komist undan lagalegum refsingum .... Ef maðurinn hætti að hafa ávinning af hegðun sinni og ef refsað yrði fyrir brotin samkvæmt hegningarlögum, er þá ekki líklegt að einhver breyting yrði á?
Á meðan brot hans leiða til ávinnings fyrir hann og hafa ekki þær afleiðingar að hann þurfi að gjalda fyrir þau með ástvinaslitum, sekt, fangelsisvist eða öðru sambærilegu, mun hann vafalítið halda uppteknum hætti. Ég veit að þetta er hægara sagt en gert, en ef til vill er það skyldfólkið, vinir og kunningjar sem þurfa að breyta sinni eigin hegðun gagnvart viðkomandi áður en og til þess að einhverjar breytingar verði á hans. Það sem erfiðast reynist í svona málum er hvað þanþol ástvina og nánustu aðstandenda er oft óendanlega mikið.
Í hvert skipti er lofað og í hvert skipti er því trúað að allt verði í lagi og ekki verði um fleiri brot að ræða. Þetta er ekki ósvipað þeirri meðvirkni sem aðstandendur alkóhólista lenda í. Ef þú sérð meðvirkni af þessu tagi í því tilviki sem þú talar um og fólk er tilbúið til að gera viðeigandi breytingar þar á, þá er brýnt að þið hugsið vel fram fyrir ykkur í því sambandi. Ef þið breytið aðstæðunum og hegðun ykkar í þá veru að það geri honum erfiðara fyrir og jafnvel stoppi hann af, má búast við því að viðkomandi bregðist mjög illa við, jafnvel svo að þeir sem í hlut eiga þurfa að undirbúa sig rækilega, leita hjálpar og skipuleggja samræmdar aðgerðir með þéttu stuðningsneti og baklandi.
Þessu til viðbótar má einnig nefna að hjá þeim sem fremja síendurtekin brot má oft sjá eins konar snjóboltaáhrif eða nám. Fyrstu brot eru þá hlutfallslega smávægileg og ekki mjög tíð. Þeim fjölgar síðan hratt, og stöðugt hraðar að sama skapi sem þau vaxa að umfangi og alvarleik. Í þessu samhengi er athyglisvert að skoða fleira en aðeins þyngd refsinganna eða í hverju þær felast. Aðrir þættir skipta líka mjög miklu máli um áframhaldið.
Þar vil ég sérstaklega nefna tvennt, þ.e. hvort eðlilegar afleiðingar brota þá væntanlega refsing að einhverju tagi, komi alltaf í kjölfar brotanna eða aðeins stundum, og einnig hve langur tími líður frá broti að refsingu, óháð því í hverju hún felst. Ef síbrotamönnum er á annað borð refsað, má væntanlega sjá að refsingin kemur seint og sjaldan, sérstaklega framarlega á brotaferli. Í ljósi þeirrar umræðu sem verið hefur að undanförnu um gagnsemi refsinga og þyngd þeirra samanborið við önnur viðurlög, þá er mikilvægt að muna að þótt brot sé með þeim hætti að eðlilegt þyki að fyrir það sé refsað, þá kennir refsing ein og sér ekki nýja hegðun.
Til að draga úr líkum þess að það sem brotamaðurinn gerir næst verði ekki líka refsivert eða meiðandi, þarf jafnhliða refsingu að kenna sérstaklega aðra hegðun sem er ósamrýmanleg brotahegðuninni, svo viðkomandi leiti inn á gæfulegri leiðir í lífinu.
Vona að svarið komi að gagni og bendi þér á ýmsar nýjar hliðar á málinu. Guðríður Adda Ragnarsdóttir, atferlisfræðingur
Heilbrigðismál | Breytt s.d. kl. 20:24 | Slóð | Facebook
2.11.2009 | 11:25
Dópáróður á mbl. blogginu
Mig langar að forvitnast um það hvort að mbl.is brjóti ekki lög með því að láta óáreittan gríðarlegan dópáróður á bloggsíðum?
Hver á að sjá um að kæra þessa bloggara sem beita stanslausum áróðri fyrir kannabis með því að vísa í Wikipedia og fleiri vefi sem hafa ekkert eftirlit með því hvaða rusl fer inná þá?
Ég hef sjálf rætt við ungan kannabisneytanda sem fullyrti að kannabisneysla væri skaðlaus eftir að hafa lesið sér til á moggablogginu.
SÁÁ er að vinna frábært starf, og það eru oftast þeirra verk að reyna að lækna dópistana, að takmarka fjármagn til meðferðastofnana er skelfileg ráðstöfun sem verður til þess að eiturlyfjaneitendur geta hvergi leitað sér lækningar.
|
Göngudeild SÁÁ lokað ef fjárframlög minnka |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Heilbrigðismál | Breytt 3.11.2009 kl. 22:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (75)
15.10.2009 | 12:37
Danir drekkja sínum sorgum
|
Geðlyfjanotkun mest hjá þeim eldri |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
30.9.2009 | 13:35
Heyr heyr!!
|
Ögmundur segir af sér |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Heilbrigðismál | Breytt s.d. kl. 13:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
11.6.2009 | 18:42
Blóðberg við svínaflensu
Blóðbergsjurtin hefur sýnt verkun gegn veirum í vísnindarannsóknum, og núna er best að týna hana. Blóðberg vex um allt land og auðvelt er að þurrka það og geyma til vetrarins. Hugsanlega mun Blóbergið geta gagnast okkur í haust við væntanlegri ofurflensu sem að gæti orðið til við samruna svínaflensunnar og þessarar árlegu inflúensu. Allavega er gott að geta lagað te úr blóðbergi í vetrarpestunum.
|
Hjálparstofnanir búa sig undir faraldurinn |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Heilbrigðismál | Breytt s.d. kl. 18:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.5.2009 | 14:53
Trúarbragðadeilur?
Þetta mál er flóknara en það virðist í upphafi. Ég hef fylgst með umfjöllun um svínaflensuna á BBC CNN og Russia today. Ég hef tekið þessar stöðvar fram yfir íslenskar fréttir undanfarin ár til að átta mig betur á eðli ESB. Ég hvet fólk til að fylgjast betur með evrópskum fjölmiðlum áður en það tekur afstöðu um aðild Íslands að ESB því að íslenskir fjölmiðlar hafa flutt mjög einhliða áróður fyrir ESB aðild og ekki flutt fréttir af mikilli óánægju með ESB meðal almennings í Evrópu, en það er nú annað mál.
Þeir sem eiga svín í Egyptalandi eru eingöngu kristið fólk, þessi svínaeign ásamt neyslu á svínakjöti er talin óhrein af múslimum sem að eru ríkjandi í Egyptalandi. þessvegna voru stjórnvöld ekki lengi á sér að fyrirskipa slátrun á öllum svínum í landinu.
Að drepa þau 300 þúsund svín sem eru í landinu er óþarfi þar sem þau eru ekki sýkt af svínaflensu, og þessi slátrun kemur sér því mjög illa fyrir efnahag kristinna svínabænda.
|
|
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
28.4.2009 | 10:56
Tryggjum ávallt fæðuöryggi.
Það er umhugsunarvert í miðri ESB umræðu, hvernig fæðuöryggi okkar yrði tryggt kæmi til alheimsfaraldurs, og flest okkar matvæli kæmu frá Evrópu. Þá gæti komið til alvarlegs skorts á helstu matvælum. Skyldu Bretar sem beittu okkur hryðjuverkalögum í bankahruninu þá beita sér fyrir því að nægur matur og lyf yrðu til fyrir almenning Íslandi?
Við eigum að læra það af bankahruninu, að við stöndum ein í erfileikum, og við eigum fyrst og fremst að tryggja hér hag íslendinga. Innganga í ESB getur reynst okkur dýrari en kostir Evru. Inngangan í ESB getur kostað okkur matvælaöryggi í alheimsfaraldri og einnig getur innganga í ESB kostað mannslíf þegar að íslendingar verða kvaddir til að sinna herskyldu fyrir væntanlegan ESB her. Tyrkland er á leið inní ESB og þá munu landamæri hinnar sameinuðu Evrópu liggja að Íran og Írak. Samkvæmt lögum ESB ættu íslendingar að taka þátt í vörnum hinnar sameinuðu Evrópu. Er þessi Evra ekki orðin alltof dýru verði keypt?
Hvernig væri að"fjölmiðlaelítan" fjallaði um þessa hlið ESB inngöngu og þá sérstaklega væntanlega herskyldu íslendinga.
|
Of seint að hindra útbreiðslu |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Heilbrigðismál | Breytt 29.4.2009 kl. 12:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (70)



Ég elska land mitt og þjóð, og læt hér í mér heyra ef mér ofbýður spilling og valdagræðgi landráðamanna(kvenna) Ísland aldrei í ESB! Öllum persónuníð og dópáróðri er eytt.
Heimssýn
Anastasia
Andrés Magnússon
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
Arnar Geir Kárason
Axel Þór Kolbeinsson
Baldur
Baldur Kristjánsson
Bergur Thorberg
Bergþóra Guðmunds
Birna Dis Vilbertsdóttir
Bjarni Harðarson
Bjarni Kjartansson
Bjarni Kristjánsson
Björn Zoéga Björnsson
Brosveitan - Pétur Reynisson
Bryndís Böðvarsdóttir
Bryndís Eva Vilhjálmsdóttir
Dóra litla
Einar Bragi Bragason.
Einar Vignir Einarsson
Elín Katrín Rúnarsdóttir.
Elísabet Sigmarsdóttir
Erla J. Steingrímsdóttir
Eva Lind
Eyþór Arnalds
Flower
Frosti Sigurjónsson
Gunnhildur Inga Rúnarsdóttir
Gunnlaugur Halldór Halldórsson
Guðlaug Helga Ingadóttir
Guðmundur Jónas Kristjánsson
Guðmundur Ásgeirsson
Guðni Karl Harðarson
Guðni Már Henningsson
Guðný Svava Strandberg
Guðrún Markúsdóttir
Guðsteinn Haukur Barkarson
Hafsteinn Karlsson
Halla Signý Kristjánsdóttir
Halldóra Hjaltadóttir
Halldóra Lára Ásgeirsdóttir
Heimir Tómasson
Helena Leifsdóttir
Helga Guðrún Eiríksdóttir
Helga Lúthersdóttir
Himmalingur
Hlini Melsteð Jóngeirsson
Huld S. Ringsted
Jakob Falur Kristinsson
Janus Hafsteinn Engilbertsson
Jens Sigurjónsson
Jóhann Helgason
Jóhanna Sigrún Jónsdóttir
Jón Valur Jensson
Jóna Sigurbjörg Guðmundsdóttir
Júlíus Valsson
Kolbrún Hilmars
Kristbjörg Steinunn Gísladóttir
Kristinn Ásgrímsson
Kristján Björnsson
Kristín Guðrún Ólafsdóttir
Kristín Jóhannesdóttir
Kristín Ketilsdóttir
Linda
Lovísa Sigmundsdóttir
Make Up Gallery ehf
Margrét Elín Arnarsdóttir
María Þorláksdóttir
Mofi
Morgunblaðið
Neo
Páll Blöndal
Rafn Gíslason
Ragnar Kristján Gestsson
Rannveig Margrét Stefánsdóttir
Ruth777
Rósa Aðalsteinsdóttir
Rúna Guðfinnsdóttir
Salvör Kristjana Gissurardóttir
Samtök Fullveldissinna
Sigríður Jónsdóttir
Sigurbjörn Svavarsson
Sigurður Þórðarson
Snjósa
Steingrímur Helgason
Steini Briem
Svavar Alfreð Jónsson
Sverrir Halldórsson
Sædís Ósk Harðardóttir
Tryggvi Hjaltason
Vigdís Stefánsdóttir
Viðar Eggertsson
Viðar Freyr Guðmundsson
cakedecoideas
lady
pirrhringur
sur
Árni þór
Ása Björg
Ása Gréta
Áslaug A Jóhannsdóttir
Ásta Kristín Norrman
Ólafur Jóhannsson
Ólafía Ingibjörg Sverrisdóttir
Óskar Helgi Helgason
Úlfar Þór Birgisson Aspar
Þóra I. Sigurjónsdóttir
Þórarinn Þ Gíslason
Þórdís Ragnheiður Malmquist
Ása Sverrisdóttir
Gunnar Rögnvaldsson
Jón Ríkharðsson
Loftur Altice Þorsteinsson
Þjóðarheiður