Færsluflokkur: Utanríkismál/alþjóðamál

Íslenskur búhnykkur fyrir ESB

Aðild Íslands að ESB mun örugglega ganga mjög hratt fyrir sig,  því að auðlindir Íslands yrðu heldur betur búbót fyrir aðildarríki Evrópu sem að öll standa frammi fyrir vaxandi atvinnuleysi og kreppu.
mbl.is Ræða aðild Íslands í febrúar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú skil ég hennar sjónarmið.

Kastljós viðtalið var afar gott og varpaði skýru ljósi á þá stöðu sem að Jóhanna og Steingrímur eru í.

Þau eru afskaplega vinnusöm bæði tvö og virðast hafa beitt einhverskonar skipuriti við "lausn" Icesave. þar sem að hvert atriði er sett í einangraðan kassa og unnið í einhverjum tíma/ferlis ás. Ég er viss um að þetta skipurit hentar vel við að byggja hús eða reka skóla, en í Icesave deilunni er það hindrun.

Þjóðarleiðtogar þurfa að beita visku og ráðdeild, þeir þurfa að hafa yfirsýn yfir vígvöllin og innsæi. allar aðstæður í viðræðum við holl/Breta eru breyttar. Bretar þurfa að reyna að bæta ímynd sína á alþjóðavettvangi, þar sem þeir þykja hinar verstu búllur eftir framgöngu sína í Íraksmálinu. Nú ESB aðild er ekki lengur eftirsóknarverð fyrir okkur og þar með hafa nýlenduherrarnir misst sterkt vopn gegn okkur.

Jóhönnu er tíðrætt um það að við höfum brotið svokallaða jafnræðisreglu og að það verði notað gegn okkur í dómstólaleiðinni.

Vissulega var jafnræðisreglan brotin en það var gert í kjölfar hrottalegrar valdbeitingar Breta, Hryðjuverkalögin sem við vorum beitt eru miklu stærri glæpur en brot á jafnræðislögum. Beiting Breta á hryðjuverkalögum er ekki einangrað brot sem að setja í sinn kassa og afgreiða seinna eins og Jóhanna heldur fram. Þetta er eitt af stóru rökunum sem að við höfum gegn Bretum í  Icesavedeilunni.

Jóhönnu er tíðrætt um það að eignir Landsbankans eigi jafnvel eftir að skila okkur 100% endurgreiðslu,nú ef svo er þá ættu Bretar og hollendingar að gera sér þessar eignir að góðu, og taka þær eins og þekkist í öllum gjaldþrotamálum.

Við þurfum ekkert að óttast nema óttann sjálfan. Fellum Icesave samkomulagið og látum reyna á dómstólaleiðina.


mbl.is Eignir Landsbankans gætu skilað meiru en áður var talið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ögmundur veit hvað hann er að segja.

Það eru ekki margir þingmennirnir sem þora að standa fyrir sinni sannfæringu með sama krafti og Ögmundur.

En ég er að velta fyrir mér þessari jafnræðisreglu sem að Jóhanna og Steingrímur eru svo stressuð yfir að við séum sek um að hafa brotið.  Okei ef við viðurkennum það hver er þá refsingin við því broti?  Og er ekki skiljanlegt að við höfum farið útí þann gjörning miðað við það sem á undan hafði gengið?  Við skulum átta okkur á því að við höfðum þá nýlega verið beitt viðbjóðslegri kúgun af hendi Breta sem að rústuðu gjörsamlega öllum alþjóðlegum viðskiptum íslendinga á einni nóttu með beitingu hryðjuverkalaganna.  

Icesave ásamt kúgun Breta í okkar garð á heima fyrir alþjóðlegum dómstólum.

Margir málsmetandi aðilar í alþjóðasamfélaginu hafa tekið upp hanskann fyrir íslendinga í Icesavedeilunni.


mbl.is Gegn hagsmunum Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fellum Icesave samninginn!

Ljósi punkturinn í Icesave deilunni er sá að það er alveg sama hvað ráðherrar núverandi ríkisstjórnar segja eða á hversu marga fundi þeir fara með útlendingum.

Þjóðin mun fá að fella þennan Iceslave samning í lýðræðislegum kosningum!

Við íslendingar tökumst saman á við afleiðingarnar þó svo að ríkisstjórnin sé hrædd við þær.   Vandamálin eru til að takast á við en ekki til að láta kúgast af. Núverandi ríkisstjórn hefur val um  annarsvegar að vinna í þágu íslensku þjóðarinnar eins og henni var treyst fyrir í upphafi eða að vinna í þágu ESB nýlenduherrana,  Breta og hollendinga.

Því miður skortir hlutleysi í fréttaflutning á RÚV og 365, svo það er mikilvægt fyrir okkur á þessum umbrotatímum í alheimsviðskiptalífi að fylgjast vel með fréttum á vönduðum erlendum fréttastofum. Efnahagur ESB og USA á  hrikalegum hremmingum sem að ekki sér fyrir endann á.

Okkur íslendingum er hreinlega hollast að pakka í vörn, og draga aðildarumsókn að ESB til baka.

 


mbl.is Skynsamlegt að fá erlendan samningamann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vinnusemi jafnast ekki á við visku.

Það sem að einkum hefur einkennt svör Steingríms og Jóhönnu varðandi Icesave er að við séum aftur komin á byrjunarreit í samningsferlinu. Þar hafa þau rangt fyrir sér. Þau virðast ekki hafa þá visku, yfirsýn og innsæi sem góðir leiðtogar og samningamenn hafa. Það vantar ekki uppá dugnaðinn hjá þeim en leiðtogahæfileikar eru ekki eitthvað sem gefast þrátt fyrir 12 stunda vinnudag.

Umhverfi til samninga er gjörbreytt frá því fyrir ári síðan, núna þurfa Bretar að svara fyrir sinn þátt í innrásinni í Írak og það reynist þeim erfitt enda ljótir gjörningar þeirra að koma uppá yfirborðið, vegna innrásarinnar eru þeir komnir með búllustimpilinn sem þeir ná ekki að nudda af sér, og svo bætist við í umræðuna kúgun þeirra á íslendingum,  svona lagað vegur þungt okkur í vil.  Nú staða Evrópusambandsins er að veikjast, svo að ekki er hægt að lokka viti borna íslendinga til ánauðar með því að lofa ESB aðild. Hvað er þá eftir til að hræða okkur með til hlýðni við nýlenduherrana?

Ljóst má því vera að við íslendingar höfum allt að vinna og engu að tapa með því að fella Icesave samninginn í þjóðaratkvæðagreiðslu, og í kjölfarið að fara fram á að dómstólar fjalli um málið. 

 

 

 


mbl.is Erfið samningsstaða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sýklalyf fyrir Haitiskipið

Núna vantar lyf og hjúkrunarvörur í Haitiskipið,  en mjög vel hefur gengið að safna tjöldum, teppum, matvælum og fatnaði fyrir þetta hjálparstarf.

Það væri frábært  að apótek, lyfjaheildsalar, lyfjaframleiðendur og læknastofur gæfu lyf og hjúkrunarvörur fyrir þetta frábæra starf.

heimasíða Haitiskipsins er www.haitiskipid.is og facebooksíðan heitir einfaldlega haitiskipið


mbl.is Sjúkdómar breiðast út á Haítí
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Íslenskt sjúkrahússkip að fara til Haiti

Hópur einstaklinga úr öllum stjórnmálaflokkum, trúar/trúleysibrögðum, af báðum kynjum og á á öllum aldri er að senda af stað sjúkrahússkip til Haiti.  Facebooksíða verkefnisins heitir  Haitiskipið 

 Fólk er hvatt til að koma með matvæli/hjúkrunarvörur í húsnæði KFUM&K Holtavegi 28 Reykjavík og einnig verður móttaka á Akureyri um helgina.

Það er lítið mál að skreppa útí búð og kaupa núðlur, kex, pasta, hrísgrjón niðursuðuvörur, súpupakka, þurrmjólk,  pela og slíkt og gefa í þetta starf. Margt smátt gerir eitt stórt, og saman munum við íslendingar geta sent fullbúið sjúkrahússkip til Haiti.

 


mbl.is Harður eftirskjálfti á Haítí
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Haitiskipið

Það er mikil neyð á Haítí. Hundruð þúsunda manna eru heimilislausir, hungraðir og særðir eftir jarðskjálftann og hörmungin er rétt að byrja. Á næstu vikum og mánuðum munu þúsundir deyja af völdum áverka, sýkinga, hungurs og þorsta. Enginn getur hjálpað öllum en allir geta hjálpað einhverjum.

Markmið okkar, sem getum ekki lengur horft aðgerðarlaus á skelfinguna, er að fylla skip af vatni, matvælum og hjúkrunarvörum ásamt læknum og hjúkrunarfræðingum og sigla af stað. Þetta er erfitt verkefni og enginn er almáttugur en saman getum við gert kraftaverk.

Þessi sýn er orðin að veruleika, allir sem vilja leggja henni lið geta skráð sig á haitiskipid@gmail.com og á þessa facebooksíðu  Haitiskipið 

Tekið verður við hjúkrunarvörum og matvælum sem ekki þurfa kælingu  t.d. hrísgrjón, pasta, súpur og dósamat í KFUM&K húsinu Holtavegi 28 frá og með morgundeginum klukkan 12-20

 


mbl.is Borgin styrkir hjálparstarf á Haítí
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Norðurlandaþjóðir valda okkur vonbrigðum.

Núna í hádegisfréttum var sagt frá því að norðurlöndin muni ekki standa við sinn hlut af lánum AGS fyrr  en eftir lausn Icesave málsins. Nú og hollendingar hafa engan áhuga fyrir því að hefja viðræður að nýju.

Við skulum ekki gleyma því að eignir Landsbankans erlendis dekka 90% af Icesave skulunum og eðlilegast væri að holl/Bretar myndu taka þessar eignir uppí Icesave reikningana og síðan fella niður þau 10% sem eftir stæðu, eða í versta falli að rukka íslendinga um þau. 

Vitandi um þessa tryggingu  er afstaða Norðurlandana undarleg en um leið afar lærdómsrík. Ísland hefur alltaf staðið við sínar alþjóðlegu skuldir, og við munum alltaf vera traustir skuldunautar, landið er afar ríkt af auðlindum sem tryggja greiðslugetu Íslands.

Brennt barn forðast eldinn. Reynslan af Bretum og hollendingum í Icesave deilunni sannar það að við munum sæta kúgun innan ESB og Norðurlöndin munu ekki  styðja okkur ef að reynt verður að hafa af okkur fiskimiðin og aðrar auðlindir.

Ísland myndi hafa ca. 3 þingmenn af meira en  500 þingmönnum ESB. Og við yrðum ein!

Vegna hlýnunar sjávar eru fiskistofnar að færast norðar. Makríll er t.d farinn að veiðast í auknum mæli innan okkar lögsögu.  Hvernig ætlast Norðulöndin til að við högum okkur í sambandi við veiðar á Makrílnum sem að þeir hafa hingað til átt?

 


mbl.is Engar viðræðuóskir frá Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hverjir eru þessir erlendu fjárfestar?

Semsagt mun þá Björgólfur Þór ekki vilja "fjárfesta" í gagnaverinu á Suðurnesjum nema að við föllumst á að greiða Icesave reikninginn hans? En hann er einmitt einn af þessum "erlendu" fjárfestum.

Ef við synjum Icesave samningnum í þjóðaratkvæðagreiðslu og í framhaldi verður farið dómstólaleiðina og í ljós kæmi að íslendingar þurfi ekki að greiða Holl/Bretum, langar mig til að spyrja, þurfum við þá öll þessi erlendu lán?

Svo er það nú spurning útaf fyrir sig hvort að við eigum alltaf að fara í miklar erlendar lántökur til virkjanaframkvæmda ef þær skila svo Landsvirkjun ekkert nema skuldum? Er Landsvirkjun alltaf að ýta á undan sér skuldabagganum með nýjum og stærri virkjunum? Hvað gerist svo þegar að ekki er hægt að virkja meira?

Ég er á því að fara útí stórfellda vatnsátöppun fyrir Coka Cola, Pepsi eða Nestle fyrir markaði í Saudi Arabiu og Asíu. Það er ekki mikill stofnkostnaður í átöppunaverksmiðjum en aftur á móti gríðarlega mikil atvinnu og verðmætasköpun. Við þurfum að sjálfsögðu að tryggja það vel að vatnið okkar sé og verði alltaf í þjóðareign. Ég kannaði það hver flutningskostnaður hjá Eimskipum er til Sameinuðu Arabísku Furstadæmana, og hann er í kringum 6 krónur per líter.

 


mbl.is Lækkun lánshæfiseinkunnar gæti orðið afdrifarík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband